Baunaaðdáandinn...;)
06.06.2007 19:02:03 / kristinl

...

Jæja er eiginlega farin að blogga bara á myspaceinu mínu...

www.myspace.com/krisskross4ever

kann ekki að láta þetta linka þangað sorry...


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 19:50:19 / kristinl

Velkomin heim...:D

Já hún elsku Sigriður kom heim i gær, og vá hvað það vara gaman að hitta hana í dag þó það væri ekki nema í  svona hálftíma..velkomin heim skvís:D Fæ að sjá fullt af henni og hinum dönsku elskunum um helgina...því við erum að fara í bústað:D Ég búnað fá frí í vinnunni á föstudaginn þannig við Dóra förum líklegast snemma á föstudeginum. Það verður alveg pott þétt hlegið mikið, drukkið mikið af áfengi, farið í pottinn..helgið ennþá meira...:D ég á allavega sögu að segja.haha:D og já það á eftir að vera hlegið mikið af henni:D

Svo er bústaðarferð í júlí líka...en ég kemst líklegast ekki í hana..alveg glatað..verð örugglega að vinna...en maður getur kannski plöggað því þegar nær dregur..allavega fyrir annað kvöldið:D krossa bara fingur:/ Langar mjög mikið að komast..langt siðan maður hefur djammað með kvennó genginu...alltof langt sko:( en það verður nu bætt úr því:D

Svo eru það auðvitað grundódagar...þar verður sko æði..búnað redda vinnunni þá og svo auðvitað Eyjar 2007..jeeeeee gaman gaman...en farin á kaffihús more later..


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 00:16:44 / kristinl

hvað gerðist eiginlega....

...þegar ég geng upp töppurnar heima hjá mér er það fyrsta sem ég sé fyrir utan dyrnar mínar rauð rós... og ég bara what...hvað er í gangi eiginlega...en svo þegar ég kem nær sé ég að bak við rósina leynist bæklingur frá samfylkingunni....já og ég sem hélt þetta væri frá leynilegum aðdáenda..hahahaha og svo var als ekki...

Þessar blessuðu kosningar...hef ekki hugmynd um hvað ég á að kjósa...það eru eiginlega allir flokkarnir sem vilja gera það sama...fyrir utan skoðanir þeirra á stóriðjuframkvæmdum...ætli maður þurfi ekki bara að ákveða hvort maður er með eða á móti þeim og kjósa út frá því...hver veit....kannski maður taki rölt a laugardaginn á kosningaskrifstofur flokkanna og leggji fyrir þá eina einfalda spurningu....."Afhverju viltu setjast á þing?" já held ég geri það bara...og vel svo útfrá því...því það er í rauninni ekki flokkurinn sem maður er beint að kjósa heldur fólkið sem situr í flokknum...verst að maður þyrfti að skreppa vestur til fá svör..ég er víst með lögheimili þar.....

En já ég, Dóra og Vaka skruppum á hvammstanga á laugardaginn að heimsækja Hrafnhildi og Hrund...gistum hjá hrafnhildi í voða kósí litlum kjallara..takk fyrir gistinguna. Við tókum rúnt um allan hvammstanga og það var bara nokkuð fallegt...frábært veður og umhverfið þarna er alveg æðislegt. Svo skelltum við okkur á söngvarakeppni eins og kynnirinn tók of oft fram...Hrund vara að taka þátt og stóð hún sig frábærlega og lenti í öðru sæti ásamt vinkonu sinni Guðrúnu. Lögin voru nú misjöfn en bara gaman í heildina séð...við dóra fórum alveg á kostum eins og venjulega...æptum úr okkur líftúrunu..."Sveitasetrið Gauksmýri"....."áhhahahahahahah"....ok prufum aftur   "Sveitasetrið Gauksmýri"...."hahahahahahhaahdfufuafafæafkafk" ennþá hærra...kynnarnir voru semsagt að lesa upp styrktaraðila keppninnar...og Hrund á heima á Gauksmýri og fannst okkur tilvalið og æpa aðeins þegar Gauksmýri var lesin upp:D

Svo var ball með Geirmundi eftir á..það var bara nokkuð skemmtilegt...en aðalmálið var nú eiginlega pólverjinn í hvítu teinóttu buxunum, appelsínugula bolnum, með belti með hauskúpum á og til að toppa allt með sólgleraugu....fékk nú að vita hvað hann heitir en man það engan veginn....hahaha sá gaur var fyndinn....en ferðin skilaði sér nú í zero hözzli...þar sem flest allir á Hvammstanga eru bara á föstu..susss...hahah:D

 Góða nótt


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 23:11:35 / kristinl

Geirmundur...

Já það er víst búið að ákveða að skella sér norður á Hvammstanga næsta laugardag og horfa á hana Hrund syngja í söngvakeppni þar...og svo er ball með Geirmundi á eftir...verður eflaust svaka stuð...fáum gistingu hjá henni Hrafnhildi sem verður bara gaman...minnir mann eflaust á veruna í Danaveldi sem er bara gott:)

Svo er maður kannski að fara á sálarball á nasa á föstudaginn...einhver sem vill koma með??? alltof langt síðan maður hefur farið..suss..en það vonandi breytist á föstudaginn.

Annars gengur lífið bara sinn vanagang..fólk kemur og fer bara eins gengur og gerist...gangur lífsins bara, sumt sorglegra en annað en svona er etta bara.

bið góða nótt bara;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 08:21:02 / kristinl

Helgin í hnotskurn....

 

aðstoða næsta...(kurteis bara:))

AÐstoða NÆsta...(svona já..aðeins hærra)

AÐSTOÐA NÆSTA...(á háa C-inu)....

"Má ég ekki bjóða þér út að borða??"

Sorry er bara að vinna...

"En á mánudaginn?"

Vinna til 8...

"En á þriðjudaginn?"

Vinna til 8 því miður:)

"En á miðvikudaginn?"

Vinna til 8 ( smá lygi)

Vinurinn....ertu ekki ná þessu hún vill ekki fara út að borða með þér:)

 

Snæfellsnes...????(Stóð sko á peysunni sem ég var í)

Hvaðan...?

Hvaðan heldur...?

Ekki segja mér að þú sért frá ólafsvík...

Nei ertu alveg klikk....

Dí....GRUNDARIRÐI...NAFLA ALHEIMSIN...(alveg hrópað og hlegið eins og ég veit ekki hvað...og það var ekki ég)

Ólsari....: Snæfellsnes...hvaðan?

Grundarfirði...

úff það er agalegt að láta grundara afgreiða sig um mat...:)

Gaurinn sem er í sko auglýsingunni.....:)

aðeins of ágengur..."hvaða reyna eiginlega margir strákar við þig hérna....svona annar hver kannski??"....og viti menn...fór að strjúka á mér hendina...ekki að fíla það sko...

já og vá fullt meira...no more now..sleeping time...


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 11:49:57 / kristinl

persona.is

hahahaha var að taka greindarvísitölupróf á persona.is....130 miða við aðra.hhe...

rakst svo á annað próf líka...

Áfengisneyslan þín er ekki eðlileg
Af svörum þínum að dæma hefur áfengisneysla þín verið heldur
ótæpileg síðastliðið ár.

hmmmm.....nokkuð skondið fannst mér:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 19:47:26 / kristinl

Páskafrí

Langþrátt páskafrí gengið í garð, komin í 5 daga páskafrí..eða fram á þriðjudag. Lagði í hann í dag vestur á snæfellsnes og er nú mætt í kyrðina og rónna hérna í naflanum...nokkuð gott bara..var enda við að borða heimatilbúinn mat....loksins:)

Bíllinn er að standa sig svaka vel...ótrúlega gaman að eiga svona nýjann bíl:)

Nú er maður orðinn einn í kotinu...það er alveg fínt...en frekar einmannalegt...þannig ef einhverjum vantar herbergi er eitt á lausu hjá mér...stærra herbergið í íbúðinni meira að segja:)

En það verður örugglega lítið um blogg næstu mánuðina...planið er að segja upp adslinu...óþarfi að vera að borga það þegar tölvan er nánasta biluð....

 en nóg í bili, Gleðilega páska:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 11:21:32 / kristinl

money money money....

Must be funny....jápp svona er það....fór í gær og pantaði bíl....glænýjan vw Polo...dökk grár einhvern veginn...kann ekki alveg að lýsa litnum...bílinn kemur vonandi fyrir páska...en líklegast bara eftir páska...sem er bara allt í góðu....:)...

Get sagt ykkur að þetta var ekki mikið mál...þurfti ekki einu sinni að taka með mér veskið;)...það kemur bara seinna...ætli það sýni ekki bara hvernig maður þarf að lifa í framtíðinni....lán og aftur lán til að eignast eitthvað af ráði....maður spyr sig...

En Ingveldur á afmæli í dag...til lykke med fodselsdagen sode...;) hvaða hljóðfæri viltu velja þér....trommur og...????;) Hafð það æðislegt í dag og njóttu dagsins..maður verður bara einu sinni 22. ára:) Hlakka til að fá þig heim...og þig líka Sigríður:)

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 22:17:04 / kristinl

Danir...

Alltaf gerir maður eitthvað nýtt og spennandi..:)...sérstaklega ég og dóra...þannig er mál með vexti að bamse...þessi yndislegi drengur sem við kynntumst úti var á landinu ásamt danska sjóhernum...eða allvega dönsku varðskipsáhöfninni...og fengum við boð um að koma að skoða skipið..og segir maður nei við þvi...? heldur betur ekki...þar með var það ákveðið og mætti við niður á reykjavíkur höfn galvaskar um 9 leytið og fengum þennan svakalega túr um skipið...helvíti flott...reyndar lítil herbergin..en flott skip....og í skipinu var auðvitað bar...og viti menn...auðvitað var okkur boðið upp á bjór og segir maður nei við fríum bjór....hmmm...hugs*****   NEI...og þar með var öllu slegið upp í kæruleysi enduðum við á prikinu og sólan á góðu fimmtudagsdjammi...þessir danir eru æði;)

Dóra átti fullt af gullmolum.....segi bara garu með buxurnar á hælunum...svíjar að bjóða í eftirparty...."sætur" gaur í 10-11...."private moments....everybody does it but no one talks about it..."...hahahahah hefðuð átt að vera þarna...var alveg að deyja úr hlátri:)

Svo var audda djamm á laugardaginn..svaka stuð á okkur..ég, dóra, íris og hulda skelltum okkur um borð  í varðskipið í smá stund en svo var haldið í bæinn ásamt 10 dönum...enduðum á sólon...og já það var gaman enda þurfti ég að þurka dropana framan úr mér sem láku niður af hárinu á mér..svona eins og gerist alltaf þegar ég dansa eins og fábjáni....

lentum svo á svaka leigubílstjóra...komum við á bsí bara til að kaupa snickers fyrir dóru...og svo fékk leigubílstjórinn að heyra svaka sögu frá club la santa og...já síðustu dónaprik dóru;)

Svo er bara að syttast í afmælið hennar dóru..og já..búnað kaupa handa henni afmælisgjöf..vona hún verði ánægð:)

adios amigos

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 22:47:52 / kristinl

Að púzzla....

Já fyrst ég kann ekki að prjóna eins og hún gerir í Grey's anatomy þá verð ég bara að púzzla í staðin...ekki mín sterkasta hlið...4 klukkutímar að baki og ekki komin með nem útlínurnar og 4 púzzl inní...suss þetta á eftir að taka eilífð...:)

Þessa dagana hefur eiginlega allt gengið á afturfótunum...geri ekkert annað enn að skera mig og brenna mig í vinnunni...og um daginn fékk ég smá sár á ennið eftir að hafa skallað brauð...geri aðrir betur:)

Ekki mikið til að hlakka til svona næst komandi daga....ekkert nema vinna...næsta djamm ekki skipulagt fyrr en 31.mars en þá ætlar dóra að halda upp á afmælið sitt...víví....og svo styttist alltaf í það að skvísurnar í danaveldi komi heim:) og er víst búið að skipuleggja bústaðarferð 8.júní...það verður svaka stuð...

Og smá fréttir...var enda við að skrá mig í námskeið haustannarinnar í HR...og þar með er það ákveðið....hjólið mitt fær að standa fyrir utan HR næsta vetur...:)

Ég, dóra og ingibjörg skelltum okkur á 90's party á Nasa á laugardaginn...og það var bara helvíti gaman....neonljós útum malt sem við auðvitað stálum eins og allir aðrir þarna og dönsuðum eins og vitleysingar í 4 tíma ...eða þar til fótarnir gátu bara alls ekki meir....

Keypti mér hjálm í dag...svaka flottann þarf eiginlega að taka mynd af mér með hann og setja á msnið mitt...týpískur fyrir mig:)..það er als ekki einlitur...og hvað þá tvílitur:)

góða nótt gríslingarnir mínir..:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 12:14:43 / kristinl

Snjór og vesen...

Þá er ferðadagurinn loksins runninn upp...vá búnað bíða eftir þessum degi nánast síðan 18.des..hehe...

En eins og venjulega er smá babb í bátnum...ef svo má segja....smá snjór í danmörku og allar samgöngur í klessu...frestun á flugi...flug lagt niður...lestarferðar í hakki..suss kunna þessir danir ekkert að meðhöndla smá snjó...?? maður spyr sig...

en við krossum bara fingur um að komast heil og höldnu á leiðarenda fyrr eða síðar...maður er sem betur fer í góðum félagsskap þannig það ætti nú að sytta manni stundirnar ef biðin verður löng...og já sigríður mín láttu þér nú batna....ég er búin að spara mig síðustu tvær helgar í áfengisdrykkju til að djamma hjá þér;)

Annars er lítið að frétta...boot camp á fullu bara...þolpróf síðasta mánudag...hlaupið gekk bara helvíti vel....en hitt já tölum bara um það næst þegar verður þolpróf..ekki nógu sátt sko...en hver væri tilgangurinn með boot camp ef maður þyrfti ekki að bæta sig....

bæ kalda ísland...sjáumst enn kaldari Danmörk;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 23:37:57 / kristinl

minna en 3 vikur..víví

...vó helgin var all svakaleg..eða föstudagskvöldið aðalega. Ég, Dóra og Hulda skelltum okkur á grímuball hjá HR...dóra er nýr meðlimur í verkfræðideild og hulda í lögfræði.hehe.. vorum mættar á ball rúmlega 12 og komnar heim aftur rétt fyrir 2 þar sem sumir..nefni nú engin nöfn voru búnir að innbyrgða aðeins og mikið alcohol...hehe..ég skemmti mér konunlega og hitti fullt af krökkum úr verkfræðinni...ætli maður hitti ekki fleiri í haust í skólanum....ef maður ákveður að halda áfram sem er eiginlega mjög líklegt...

Á laugardeginum  var afmæli hjá Ingibjörgu...aðeins rólegra kvöld þar sem sumir..nefni enginn nöfn aftur voru graut þunnir á laugardeginum og eyddum stórum hluta dagsins inn á baði...ofan í klósettinu...og hinn hlutann af deginum í hettupeysu með hettuna á, húfu og dökk sólgleraugu..hehe...en gaman þrátt fyrir allt. Ég og dóra enduðum svo heima hjá mér eins og venjulega og fengum okkur dominos og horfðum á eitt stykki dvd....toppuðum svo sökkhelgi dauðans með því að fara á American style á sunnudaginn....en á laugardeginum var það líka Donni frændi og einn hlölli..hehe...við góðar...;)

En það eru víst bara rólegeheit framundan þangað til farið er út...reyndar party næsta laugardag en þar sem ég er peningalítil og það vantar í vagninn bæði kvöldin hef ég ákveðið að vinna...en já ekki alveg 100 prósent öruggt en svona næstum...þá verðum við atli saman í vagninum.....

Eftir þessa helgi eru strákar enn jafn hmm.. hvað á maður að segja....bara fæddir á plánetu enn lengra frá stelpum en áður...hehe...en hvað um það...get eiginlega ekki pikkað meira titra svo í höndunum eftir æfingu dagsins...

Segi bara yfir og út....hlakka til að hitta ykkur Ingveldur og Sigríður...

góða nótt


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 22:28:23 / kristinl

Svekkjandi...en frábær frammistaða...

Vá...ég var að fara yfirum áðan að horfa á leikinn...sjæse...ekkert smá svekkjandi að tapa með einu marki eftir að hafa jafnað og knúið fram framlengingu...en ég er ekkert smá stolt af þessum drengjum í landsliðinu...topp 8 er frábært...og lendum aldrei neðar en 6.sætið...spilum víst um 5. sætið við Rússa á fimmtudaginn....litla ísland að standa sig frábærlega:)

lífið gengur bara sinn vana gang....hjóli fram og til baka í vinnu...rosa hressandi...syndi og hleyp svona til skiptis...helst 5 sinnum í viku...og svo var ég að skrá mig í boot camp...byrja 12.febrúar kl. 8:30...þá get ég farið á bíl nefnilega...á meðan alti er í vinnunni...held ég myndi ekki meika að hjóla heim eftir þessa tíma...maður er víst alveg gjörsamlega búinn...eins og er er ég að æfa mig í armbeygjum...gengur þokkalega....:) en hlakka ýkt til að byrja:)

Afmæli hjá Ingibjörgu á laugardaginn....suss...nú verður sko slett almennilega úr klaufunum...hef ekki gert það síðan 15.des í danmörku...og það kvöld var all svakalegt sko...hehe...;)

Svo eru bara 24 dagar í að maður stígi fæti á danmörku aftur....og þá verður sko tekið á því..föstudag og laugardag og kannski bara sunnudag...nema maður sé orðinn svona gamall að maður meiki ekki 3 daga....

en farin að lúlla svo ég geti vaknað í fyrramáli og hreyft á mér rassgatið..góða nótt


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 01:24:52 / kristinl

Einn mánuður...

Strákar og stelpur....þetta tvennt gæti ekki verið ólíkara.....strákar eru frá mars og stelpur frá venus...eða var þetta annars ekki svona....hmmm man ekki alveg. Las áðan pistil um það hvert ástin hefði eiginlega farið...í dag snérist allt á milli kynjanna bara um kynlíf og það hvað allir væru hættir að leyta að þeima "eina rétta/u"....þið vitið...einhverjum með sömu áhugamál og maður sjálfur...einhvern sem hægt er að treysta fullkomlega og segja allt...já þessi heimur er orðinn eitthvað skrítið...krakkar farnir að sofa hjá 13 ára eða jafnvel fyrr, og allir haldandi framhjá hægri vinstri með kærasta/u besta vinar/vinkonu síns....alveg ótrúlegt...

Og afhverju er ekki almennileg "deitmenning" á íslandi...hmmm..spurning...alltaf bara...hey förum í bæinn...hözzlum...og svo bara daginn eftir....vó hvað var ég að pæla...þið skiljið...

hahah klikkuð maður...var bara að pæla...er hérna ein heima á föstudagskvöldi...klukkan reyndar að verða hálf 2....reyna að horfa á einhverja mynd í sjónvarpinu...ekki alveg að virka...vin Diesel að leika í henni og allt...(eða hvernig sem maður skrifar nafnið hans)....als ekki slæmt útsýni það:)...

Vona innilega að íslensku strákunum gangi vel á morgun....stend allavega með þeim sama hvað....þeir eru æðibitar:)

en góða nótt klikkaða fólk þarna úti....


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 19:56:00 / kristinl

Allt á kafi allstaðar....

Já heyrst hefur á förnum vegi að Bláfjöll eigi að opna á morgun....kossa fingur fyrir því....eru nú engir alpar en tussast...er þaggi veldur???...og gömlu skíðin...þung og stór....ekkert í líkingu við nýju tegundirnar....en það tussast líka..hehe:)

Allt gott að frétta úr Hraunbænum...óvænt djamm í gær...og já óvænt kvöld...:)

Svo er víst danadjamm næsta laugardag....einhverjir hott strákar sem hún Íris þekkir..hehe...

22 ára afmæli hjá henni Ingibjörgu 3.feb...allt að gerast...:)

En vinna eftir 4 tíma...til svona 8 í fyrramáli...verður gott að koma heim í fyrramáli og leggjast undir sæng og kúra....ahhh hlakka til:)

Einhverjar hugmyndir um það hvað maður á að gera í haust...???? úff alveg clueless...:S:S


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 júní